|
 |
|
|
15. janúar 2016 |
Opinn fundur um fiska og vatnsaflsvirkjanir |
Landsvirkjun býður til opins morgunverðarfundar, sem haldinn er í samstarfi við Veiðimálastofnun, um áhrif vatnsaflsvirkjana á fiskistofna. Kynntar verða rannsóknir Veiðimálastofnunar og rætt um þann lærdóm sem við getum dregið af reynslunni. Fundinum verður streymt beint á heimasíðu Landsvirkjunar www.landsvirkjun.is.
Fundurinn verður á Grand Hótel miðvikudaginn 20. janúar kl. 8:30 - 10:00. Morgunkaffi verður frá kl. 8:00.
Fyrirlestrar sem verða fluttir:
Ábyrgð Landsvirkjunar. Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og fundarstjóri.
Virkjanir og áhrif þeirra í Sogi og Laxá. Magnús Jóhannsson, fiskifræðingur og sviðsstjóri á Veiðimálastofnun.
Virkjun og fiskistofnar Blöndu. Sigurður Guðjónsson, fiskifræðingur og forstjóri Veiðimálastofnunar.
Áhrif Kárahnjúkavirkjunar á fiskistofna Lagarfljóts og Jökulsár á Dal. Ingi Rúnar Jónsson, fiskifræðingur á Veiðimálastofnun.
Þjórsár- og Tungnaársvæði, fiskistofnar og virkjanir. Benóný Jónsson, líffræðingur á Veiðimálastofnun.
Að loknum erindum stýrir Guðni Guðbergsson, fiskifræðingur og sviðsstjóri á Veiðimálastofnun, umræðum.
|
|
Til baka
|
|
|
yfirlit frétta
|
|
|
|
|